VS
Víkin, fimmtudagurinn 2. október kl 19:30
Við FHingar leggjum
leið okkar í Fossvoginn, nánar tiltekið í Víkina í næsta leik fimmtudaginn 2. október.
Víkingana þekkjum við vel frá síðasta tímabili en liðið fylgdi okkur upp í
úrvalsdeild síðastliðið vor.
Gengi liðanna
FH liðið tók á
móti HK mönnum á fimmtudaginn var og beið naumlega lægri hlut. Liðið sýndi
mikla baráttu og áræðni og átti í fullu tréi við HK menn en HK er gífurlega vel
skipað og hefur mikla breidd. FH vann í vikunni áður Akureyri í góðum leik
fyrir norðan.

Fyrirliðinn einbeittur
Víkingar byrjuðu
virkilega vel gegn Fram í síðasta leik, náðu góðri forystu mjög snemma en fljótlega
seig undan og Fram vann nokkuð sannfærandi sigur. Áður átti liðið ágætan leik
gegn Valsmönnum en eftir jafnan leik höfðu Víkingar ekki undan og biðu lægri
hlut. FH hefur tvö stig í fimmta sæti, Víkingur ekkert í því sjöunda.
Víkingsliðið
Víkingum er spáð neðsta sæti deildarinnar á eftir okkur í
FH. Liðið er feykilega ungt rétt eins og FH liðið og hefur hópur þeirra lítið
sem ekkert breyst frá tímabilinu í fyrra. Í samtali við sport.is fyrir mótið
sagði Róbert Sighvatsson þjálfari Víkinga að liðið sé búið að leggja mikið á
sig fyrir tímabilið og æft vel, meðal annars farið í æfingaferð til Þýskalands.
Styrkur þess sé án efa mjög góð liðsheild.
Tekið á Aroni gegn HK
Undirbúningur
Menn voru
tiltölulega svekktir með tap í síðasta leik gegn HK því ekki var spurning að
liðið hafði góða möguleika á að ná amk stigi út úr leiknum. Liðið spilaði samt
sem áður mjög vel og tekur það veganesti með sér í næsta leik þar sem ekkert er
annað á borðinu en sigur. Liðið hefur æft vel og er mjög fókuserað á næsta
leik.
Ástand
Ástand manna er
ágætt. Þó er eitthvað um meiðsli. Hjörtur Hinriksson fyrirliði og hornamaður er
að krafsa sig út úr ökklameiðslum en verður með. Hilmar Þór Guðmundsson markvörður
er slæmur í baki og er frá, Ari Þorgeirsson hornamaður er slæmur í hné og óvíst
er um þátttöku hans, Árni Stefán Guðjónsson hornamaður glímir við erfið
bakmeiðsli, Ólafur Gústafsson skytta er í hnémeiðslum og Heiðar Örn Arnarson
skytta er enn að fást við axlarmeiðsli. Liðið hefur þó úr nægu að moða og er
til í slaginn.
Maggi blæs út í markinu
Líklegur hópur á fimmtudag:
Markverðir
Magnús
Sigmundsson
Daníel
Andrésson
Aðrir
leikmenn
Guðmundur
Pedersen
Benedikt
Reynir Kristinsson
Ólafur
Guðmundsson
Ásbjörn
Friðriksson
Aron
Pálmarsson
Guðni Már
Kristinsson
Jón Helgi
Jónsson
Halldór
Guðjónsson
Reynir
Jónasson
Hjörtur
Hinriksson
Sigurður
Ágústsson
Sigursteinn
Arndal

Óli Guðmunds gegn HK
Staðan
| Nr. |
Félag |
Leik |
U |
J |
T |
Mörk |
Nett |
Stig |
| 1. |
Haukar |
2 |
2 |
0 |
0 |
65:49 |
16 |
4 |
| 2. |
Fram |
2 |
2 |
0 |
0 |
63:53 |
10 |
4 |
| 3. |
Valur |
2 |
1 |
1 |
0 |
58:53 |
5 |
3 |
| 4. |
HK |
2 |
1 |
0 |
1 |
59:60 |
-1 |
2 |
| 5. |
FH |
2 |
1 |
0 |
1 |
64:62 |
2 |
2 |
| 6. |
Stjarnan |
2 |
0 |
1 |
1 |
45:52 |
-7 |
1 |
| 7. |
Víkingur |
2 |
0 |
0 |
2 |
59:70 |
-11 |
0 |
| 8. |
Akureyri |
2 |
0 |
0 |
2 |
54:68 |
-14 |
0 |
Stuðningur
Það var virkilega gaman að mæta upp í krika með 600-700 manns í stúkunni í
síðasta leik. Frábær stemmning og umgjörð var í húsinu og stuðningur áhorfenda
var frábær, enda valdir áhorfendur umferðarinnar að mati www.handbolti.is. Við
vonum að FHingar slái ekki slöku við, taki fimmtudagskvöldið frá og mæti niður
í Fossvog til að sjá hörkuleik og annan FH sigurinn á tímabilinu!
Áfram FH!
Heiðar Örn Arnarson

