Þjálfari
meistaraflokks karla í FH, Elvar Erlingsson, situr nú fyrir svörum á FH.is
eftir góðan og mjög mikilvægan sigur í fyrsta leik deildarkeppninnar gegn vel
mönnuðu liði Akureyrar. Elvar var spurður út í komandi tímabil, væntingar og
samanburð við liðið sem hann þjálfaði um aldamótin síðustu.

Elvar Erlingsson þjálfari FH
Hvernig
leggst svo tímabilið í Elvar?
„Tímabilið leggst bara mjög vel í mig. Þetta
er náttúrulega stórt stökk á milli deilda. Við erum búnir að undirbúa okkur vel
og erum tilbúnir í þetta að mínu mati. Síðasti vetur gekk vel og notuðum við
því þann tíma til að undirbúa okkur fyrir úrvalsdeildina. Við erum í nokkuð
góðu standi hvað varðar líkamlega þáttinn, 3 leikmenn í meiðslum, svo mér líst
nokkuð vel á þetta.
Okkur var spáð 7. sætinu í deildinni á þessum
árlega fundi sem er eðlilegt að mínu mati enda erum við nýliðar í deildinni.“
Ertu ánægður
með leikmannahópinn?
„Já, við fengum 4 nýja leikmenn, þá Hjört
Hinriksson og Magnús Stefánsson sem komu aftur heim ef svo má segja og að norðan
fengum við Ásbjörn Friðriksson og Arnar markmann svo við erum ekki á flæðiskeri
staddir hvað varðar leikmenn. Í þessum leikmönnum erum við að fá menn með
reynslu úr Úrvalsdeildinni, menn sem hafa unnið titla, spilað í
Meistaradeildinni og svo mætti lengi telja. Þetta er góð blanda að okkar mati,
eldri og reyndari leikmenn með yngri strákum sem eru mjög efnilegir.“
Leikstíll
liðsins, hvernig er hann?
„Við erum með aggresíft lið með ákafa og
vilja til að æfa mikið. Ákefðinni fylgir að það eru gerð mistök í svona hröðum
bolta og með þessum mönnum sem hafa reynslu erum við að takmarka þessi mistök.“
Hvernig
hefur undirbúningurinn verið. Er hann eitthvað frábrugðinn frá því sem var í
fyrra?
„Að einhverju leyti kannski. Það felst í því
að við höfum eytt miklu púðri í lyftingar auk þess sem við tókum út að mestu
erfið malbikshlaup og lengri hlaup. Við færðum okkur meira yfir í áfangaþjálfun
í sprettum þar sem handboltaleikmenn hlaupa ekki jafn miklar vegalengdir og
t.d. knattspyrnumenn. Þannig að það voru smá áherslubreytingar já.“
Æfingaleikir,
hvernig hafa þeir gengið?
„Við lékum einhverja 12 leiki sem gengu
ágætlega. Við höfum unnið þokkalega sterk lið og átt nokkra góða leiki gegn
Úrvalsdeildarliðum svo við erum klárir í bátana og höfum undirbúið okkur vel.“
Eru
einhverjar horfur á því að það bætist við leikmannahópinn?
„Við erum að horfa í kringum okkur eftir
leikmanni og það eru ákveðnar þreifingar í því en ekkert sem hægt er að gefa
út.“
Hverjar eru
svo væntingar þínar fyrir tímabilið?
„Við setjum okkur einhver markmið sem við
skiptum niður en fyrsta markmið er náttúrulega að halda okkur í deildinni,
annað væri fífldirfska af okkar hálfu. Við getum ekki leyft okkur eitthvað
meira og ef eitthvað er að marka spádóma og kristalskúluna verðum við að ströggla
en að sjálfsögðu ætlum við okkur eitthvað meira sem við höldum fyrir okkur. Við
ætlum að reyna að festa okkur í sessi í þessari deild.“
Næsti leikur
liðsins er gegn HK, er það vinnandi vígi?
„Já,já. HK-liðið er náttúrulega sterkt og
munu taka á því frá fyrstu mínútu. En eins og ég segi að þá erum við tilbúnir í
slaginn og viljum byrja mótið vel. Við erum með góða liðsheild og eigum að
fljóta vel á því.“
Þú hefur
þjálfað liðið áður, fyrst í 3 ár sem aðstoðarmaður Kristjáns Arasonar og svo
sem aðalþjálfari veturinn 1999-2000. Er mikill munur á landslaginu í boltanum
frá þeim tíma?
„Já, það hefur breyst töluvert en kannski er
ósanngjarnt að bera þetta saman hvað varðar liðið. Þá vorum við með mun
rútíneraðra lið og um leið reynslumeira. Yngri kynslóðir voru að koma inn þá,
og ég nefni Hjört, Gunnar Narfa, Lárus Long, og Steini var að stíga sín fyrstu
skref en jafnframt voru margir reynslumeiri menn í liðinu þá. Liðið núna er
nánast eingöngu skipað ungum mönnum. Áður fylgdi liðinu meiri pakki, eiginkonur
og allt svoleiðis en núna er þetta öðruvísi, það er minna í kringum þetta.
Núna er 8 liða deild miðað við 12 liða deild
sem var með 8-liða úrslitakeppni. Við enduðum í 7. sæti minnir mig en það sem
skýtur upp í kollinn hvað varðar breytingar er að hraðinn er orðinn meiri en
hann var.“
Hvað með
skilaboð til FH-inga?
„Ég segi nú bara sem oft áður að fólk þarf að
láta sjá sig í húsinu og styðja vel við bakið á liðunum. FH á góðan kjarna sem
fylgt hefur liðinu lengi en það er náttúrulega sama gamla sagan að það er okkar
að draga fólk í húsið með góðri spilamennsku. Jafnframt verða FH-ingar að
hjálpa okkur með góðu umtali, vera bjartsýn og sýna hlutunum biðlund og taka
tillit til þess sem verið er að gera. Núna er annar pakki frá því sem var í
fyrra, mun stærri pakki.“
Það var skeleggur blaðamaður kynningarmálaráðs handknattleiksdeildar, Hilmir Heiðar Lundevik sem ræddi við Elvar.

