Fyrsti heimaleikurinn í vetur - FH-HK

23.9.2008 Heiðar Arnarson

  VS 

Kaplakriki, fimmtudagurinn 25. september, kl. 19:30

Önnur umferð N1 deildar karla fer fram fimmtudaginn 25. september og laugardaginn 27. september. Á fimmtudagskvöldið tökum  við FHingar á móti HK mönnum úr Kópavogi. Von er á hörkuleik. HK liðið tapaði heldur illa fyrir Fram í síðasta leik en við FHingar fórum norður á Akureyri og hirtum stigin sem þar voru í boði.

Gengi liðanna

FH liðið fór góða ferð til Akureyrar síðasta fimmtudag í fyrsta leik mótsins og nældi í sigur á lokasprettinum með miklum karakter eftir jafnan baráttuleik. HK var aftur á móti heillum horfið í sínum fyrsta leik gegn Fram á heimavelli, a.m.k. í fyrri hálfleik. Í seinni hálfleik var forysta Fram of stórt bil að brúa fyrir HK menn .

HK liðið.

HK liðið er með mikla og góða breidd og vel mannað lið. Þeir hafa þó misst alla sína útlendinga þá Strazdas, Petja, Sergey og Tomas en fengið í staðinn klassa leikmenn eins og Sverre Jakobsson silfurlandsliðsmann frá í sumar, Valdimar Þórsson erlendis frá, Jón Björgvin og Einar Inga frá Fram, og Sveinbjörn markvörð frá Akureyri. Fyrir hjá liðinu eru svo sterkir leikmenn og má þar nefna FHinginn og varnartröllið Sigurgeir Árna Ægisson. HK liði er því heldur óárennilegt og klárlega Íslandsmeistarakandídatar.

Undirbúningur

 FH liðið æfir nú sem aldrei fyrr tilbúnir að leggja allt í sölurnar fyrir fyrsta heimaleikinní vetur en ætla að selja sig dýrt. Munurinn á pappír telur ekkert þegar á gólfið er komið og engin spurning er að fast verður tekið á móti Kópavogsbúum er þeir mæta í krikann.

Ástand

Ástand manna er með fínasta móti. Þó eru einhverjir búnir að lenda í hnjaski. Fyrirliðinn Hjörtur er óðum að jafna sig og von er á að hann verði vel spilfær. Hilmar Guðmundsson markverja er tæpur í baki og óvíst með þátttöku hans í leiknum. Ólafur Gústafsson, Heiðar Arnarson og Árni Stefán Guðjónsson verða áfram frá keppni í einhvern tíma. Aðrir eru afar sprækir og í fínu standi.

Líklegur hópur á fimmtudag

Markverðir

Magnús Sigmundsson

Daníel Andrésson

Aðrir leikmenn

Guðmundur Pedersen

Benedikt Reynir Kristinsson

Ólafur Guðmundsson

Ásbjörn Friðriksson

Aron Pálmarsson

Guðni Már Kristinsson

Jón Helgi Jónsson

Ari Magnús Þorgeirsson

Reynir Jónasson

Hjörtur Hinriksson

Sigurður Ágústsson

Sigursteinn Arndal

 

Stuðningur

Góðir FHingar. Um er að ræða fyrsta heimaleik FHinga í Úrvalsdeild í tvö ár. Nú er tækifærið að líta hetjurnar okkar augum og styðja þá með ráð og dáð. Strákarnir ætla sér að berjast til síðasta blóðdropa og stuðningur áhorfenda getur án nokkurs vafa fleytt þeim langleiðina til sigurs. Mætum öll og hjálpum strákunum í baráttunni.

Áfram FH!!!

Heiðar Örn Arnarson



Bakhjarl FH

Nú hafa knattspyrnu- og handknattleiksdeildir Fimleikafélagsins leitt saman hesta sína við útgáfu svokallaðra bakhjarla-korta FH. Takmarkið er að sjálfsögðu að fá alla FH-inga nær og fjær til að leggjast á eitt til þess að viðhalda styrk þessara deilda og ná ennþá hærri markmiðum í framtíðinni. Þú getur tekið þátt með því að gerast bakhjarl FH strax í dag.

Sjá nánar.

Myndasafn

Könnun

Ert þú Bakhjarl?