Getraunastarf FH hefur fengið nýtt tölvupóstfang 1x2@fh.is . Föstudagskvöldið 10. febrúar verður mikið um að vera hjá okkur í krikanum þegar lið þjálfara mætir liði leikmanna í spurningarkeppni aldarinnar.
Það ætti ekki að hafa farið fram hjá neinum að getraunastarf FH hefur verið endurvakið í Kaplakrika. Alla laugardaga á milli klukkan 11 og 14 er opið í kaplakaffi (gamla sjónarhóli) og eru allir hvattir til að mæta, taka þátt og hitta félagana.
Fimleikafélag Hafnarfjarðar óskar stuðningsmönnum og velunnurum gleðilegra jóla og farsældar á nýju ári.
Sjáumst hress á nýju ári í Krikanum.