Hinn gríðarvinsæli Íþróttaskóli FH hefst næstkomandi laugardag þann 14. janúar. Skólinn verður með sama sniði og fyrir áramót og lagt upp úr því að krakkarnir eigi skemmtilega og þroskandi leikstund.
Farið verður í marga leiki og fá börnin að prufa nánast allar íþróttir sem í boði eru. 2-3 ára börn eiga að mæta kl 09:30 - 10:30. 4-6 ára börn eiga að mæta kl 10:30 - 11:30
Umsjónarmenn skólans eru Bryndís Sighvatsdóttir, Eva Þórunn Vignisdóttir og Sigurður Víðisson.