Vís

FH - Fram oddaleikur (auglýsing)

17.4.2011 Benedikt Gunnar Ívarsson
FH tekur á móti Fram í þriðja leik liðanna í undanúrslitun N1 deildar karla. Allir á völlinn. 

Jón Þórðarson (Nonni hressi) og Sigþór Árnason mun grilla borgara og bratwurst pyslur fyrir gesti.  Það verður fróðlegt að fylgjast með hvernig þessir heilsuboltar höndla alvöru prótínbombur beint af grillinu.

Að sjálfsögðu verður tónlist og margt fleiri í boði.

Bakhjarlakort FH gilda ekki á þennan leik þar sem um oddaleik í úrslitakeppni er að ræða.  Bakhjarlar+ sem kaupa miða á leikinn fá að sjálfsögðu aðgang að bakhjarlasvæði og veitingum.



Bakhjarl FH

Nú hafa knattspyrnu- og handknattleiksdeildir Fimleikafélagsins leitt saman hesta sína við útgáfu svokallaðra bakhjarla-korta FH. Takmarkið er að sjálfsögðu að fá alla FH-inga nær og fjær til að leggjast á eitt til þess að viðhalda styrk þessara deilda og ná ennþá hærri markmiðum í framtíðinni. Þú getur tekið þátt með því að gerast bakhjarl FH strax í dag.

Sjá nánar.

Myndasafn

Könnunin

Ert þú Bakhjarl?