Kæri FH-ingur



Nú hafa knattspyrnu- og handknattleiksdeildir Fimleikafélagsins leitt saman hesta sína við útgáfu svokallaðra bakhjarla-korta FH. Takmarkið er að sjálfsögðu að fá alla FH-inga nær og fjær til að leggjast á eitt til þess að viðhalda styrk þessara deilda og ná ennþá hærri markmiðum í framtíðinni. Þú getur tekið þátt með því að gerast bakhjarl FH strax í dag.

Handhafar FH-kortsins munu eiga kost á því að njóta afsláttar eða annars konar fríðinda í ýmsum verslunum og mun hópur samstarfsaðilanna stækka í takt við stækkandi hóp bakhjarla. Smelltu á fríðindi til þess að sjá hverjir samstarfsaðilar okkar eru.

Bakhjarlastarf hefur víða gefið góða raun og má í því samhengi nefna eitt stærsta lið í heimi, Barcelona FC en það er í eigu stuðningsmanna liðsins. Nú er okkar tækifæri til að sameinast í verki og efla starfið í Kaplakrika því það eru ekki bara leikmennirnir inni á vellinum sem eru FH. FH er ein heild. Við erum FH. $0 $0Í boði eru fimm mismunandi bakhjarla-leiðir:

Bakhjarl



Hentar þeim sem ekki hafa tök á því að koma á leiki en vilja engu að síður styrkja FH. Korthafi nýtur allra þeirra fríðinda sem í boði eru en kortið er ekki hlaðið leikjum.

Foreldrar barna í yngri flokka starfi deildanna eiga kost á því að fá 6 heimaleiki hlaðna inn á sitt kort (Foreldri Bakhjarl). Gildir bara fyrir þetta grunn-bakhjarlakort.

700 ISK./mánuði
8.400 ISK./ári


Silfur Bakhjarl

Innifalið hér er bakhjarlagjaldið en einnig er kortið hlaðið með 11 heimaleikjum sem gilda á heimaleiki FH í handbolta og fótbolta í Íslandsmóti. 

Hægt er að nýta sér hleðsluna á hvaða hátt sem er, t.d. er hægt að fara á 5 fótboltaleiki og 6 handboltaleiki eða fara á 1 fótboltaleik og bjóða 10 vinum með sér í leiðinni!

1.608 ISK./mánuði
19.296 ISK./ári


Silfur Bakhjarl +

  Innifalið hér er bakhjarlagjaldið en einnig er kortið hlaðið með 11 heimaleikjum sem gilda á heimaleiki FH í handbolta og fótbolta í Íslandsmóti. Þá fær handhafi veglegar veitingar fyrir leik og í hálfleik á þeim heimaleikjum sem hann mætir á.

Hægt er að nýta sér hleðsluna á hvaða hátt sem er, t.d. er hægt að fara á 5 fótboltaleiki og 6 handboltaleiki eða fara á 1 handboltaleik og bjóða 10 vinum með sér í leiðinni!

1.858 ISK./mánuði
22.296 ISK./ári


Gull Bakhjarl

Innifalið hér er bakhjarlagjaldið en einnig er kortið hlaðið með 22 heimaleikjum sem gilda á heimaleiki FH í handbolta og fótbolta í Íslandsmóti.

Þetta kort gefur þér kost á að fara á alla heimaleiki FH í handbolta og fótbolta. Einnig getur þú t.d. farið 1 leik í fótbolta og boðið 12 vinum og farið svo á 1 leik í handbolta og boðið 8 vinum!

2.313 ISK./mánuði
27.756 ISK./ári



Gull Bakhjarl +

Innifalið hér er bakhjarlagjaldið en einnig er kortið hlaðið með 22 heimaleikjum sem gilda á heimaleiki FH í handbolta og fótbolta í Íslandsmóti. Þá fær handhafi veglegar veitingar fyrir leik og í hálfleik á þeim heimaleikjum sem hann mætir á.

Þetta kort gefur þér kost á að fara á alla heimaleiki FH í handbolta og fótbolta. Einnig getur þú t.d. farið 1 leik í fótbolta og boðið 12 vinum og farið svo á 1 leik í handbolta og boðið 8 vinum!

2.813 ISK./mánuði
33.756 ISK./ári




Það er einlæg von okkar að þú, FH-ingur góður, sjáir þér fært að leggja þitt af mörkum með því að skrá þig í félagið og velja þér kort sem hentar þér. Því eins og segir í laginu, „Með samstilltu átaki allra við erum toppnum á."

tekið er á móti spurningum á netfanginu kort@fh.is

Nýjung: Nú er hægt að staðgreiða fyrir árstímabil í senn með því að millifæra á Bakhjarlareikninginn. Einnig getum við sent gíróseðil mánaðarlega. Sendu póst á kort@fh.is og saman göngum við frá greiðslu.
Er foreldri iðkanda
Skilmálar
Loka glugga

FH - Skilmálar


Almennt
FH áskilur sér rétt til að hætta við pantanir, t.d. vegna rangra verðupplýsinga og einnig að breyta verðum eða hætta að bjóða upp á vörutegundir fyrirvaralaust. Áskilinn er réttur til að staðfesta pantanir símleiðis. Kortin eru í gildi frá maí til maí. Þannig eru kort sem merktu eru 2010 í gildi á knattspyrnuvertíðinni 2010 og á handknattleikstímabilinu 2010-2011.

Afhending vöru
Tvisvar í mánuði er nýtt upplag prentað af kortunum, í 1. og 3. viku hvers mánaðar. Í 2. og 4. viku er áætlað að kortin berist nýjum korthöfum. Pöntun þarf að eiga sér stað viku fyrir hverja prentun, þ.e. þær pantanir sem koma inn vikuna fyrir hverja prentun fara í prentun í næstu prentun á eftir. Sé varan ekki til á lager mun þjónustufulltrúi hafa samband og tilkynna um áætlaðan afhendingartíma vörunnar. Öllum pöntunum er dreift af Íslandspósti og gilda afhendingar-, ábyrgðar og flutningsskilmálar Íslandspósts um afhendingu vörunnar. FH ber samkvæmt þessu enga ábyrgð á tjóni sem kann að verða á vöru í flutningi. Verði vara fyrir tjóni frá því að að hún er send frá FH til viðkomandi er tjónið á ábyrgð kaupanda.

Skilafrestur og uppsagnarréttur
Kaupandi hefur 7 daga til að hætta við kaupin, þ.e. áður en kortið fer í prent. Sé varan farin í prent er kaupandi skuldbundinn til þess að greiða prentkostnað vörunnar. Mánaðargjöld eru innheimt í eitt ár í senn. Áskriftin endurnýjast að ári liðnu nema korthafi óski eftir því að hætta að styrkja félagið – það skal tilkynnt í síðasta lagi í janúarlok fyrir nýtt FH-kortatímabil, sem hefst í maí á ári hverju.Flutnings- og póstburðargjöld eru ekki endurgreidd. Vinsamlegast hafið samband við FH með spurningar á BAKHJARL@FH.IS.

Verð
Vinsamlegast athugið að verð á netinu getur breyst án fyrirvara.

Skattar og gjöld
Öll verð í netversluninni eru með VSK og reikningar eru gefnir út með VSK.

Trúnaður
Seljandi heitir kaupanda fullum trúnaði um allar þær upplýsingar sem kaupandi gefur upp í tengslum við viðskiptin. Upplýsingar verða ekki afhentar þriðja aðila undir neinum kringumstæðum.

Bakhjarl FH

Nú hafa knattspyrnu- og handknattleiksdeildir Fimleikafélagsins leitt saman hesta sína við útgáfu svokallaðra bakhjarla-korta FH. Takmarkið er að sjálfsögðu að fá alla FH-inga nær og fjær til að leggjast á eitt til þess að viðhalda styrk þessara deilda og ná ennþá hærri markmiðum í framtíðinni. Þú getur tekið þátt með því að gerast bakhjarl FH strax í dag.

Sjá nánar.

Myndasafn

Könnun

Ert þú Bakhjarl?