30.12.2011
Biggi
Íþróttamaður FH árið 2011
Eins og venjulega verður valinn íþróttamaður FH á gamlársdag. Athöfnin hefst stundvíslega kl 13:00 fer hún fram í veislusalnum Sjónarhóll og verður kaffi og kökur í boði. Við hvetjum alla FH-inga til þess að mæta.
Aðalstjórn FH
24.12.2011
SR
Gleðileg jól
Fimleikafélag Hafnarfjarðar óskar stuðningsmönnum og velunnurum gleðilegra jóla og farsældar á nýju ári.
Sjáumst hress á nýju ári í Krikanum.
23.12.2011
Biggi
Íþrótta- og viðurkenningarhátið Hafnarfjarðar 29.des við Strandgötu
Bæjarstjórn Hafnarfjarðar og íþrótta- og tómstundanefnd afhendir viðurkenningar til hafnfirskra íþróttamanna, Íslandsmeistara, hópa Bikarmeistara, Norðurlandameistara og sérstakra afreka, ásamt vali á “Íþróttakarl og Íþróttakona Hafnarfjarðar” og “Íþróttaliði ársins” árinu 2011.
Afhendingin fer fram í íþróttahúsinu við Strandgötu mánudaginn 29. desember. 2011, kl. 18:00.
Við FH-ingar eigum fjölmarga íslands og bikarmeistara og eiga þeir allir að mæta.
Aðalstjórn
8.12.2011
Biggi
Hið glæsilega jólahlaðborð FH - Örfáir miðar eftir
Þann 10. des kl 19:00 verður jólahlaðborð FH haldið í glæsilega veislusalnum okkar Sjónarhóli. Veislan heppnaðist svo vel í fyrra að ákveðið var að endurtaka veisluna en gera hana töluvert flottari. Dagskráin og matseðilinn er hreint út sagt glæsilegur, yfir 20 rétta hlaðborði frá Kjötcompaníinu og fjölmörg tónlistar- og skemmtiatriði.
2.12.2011
Biggi
Óskilamunir í Kaplakrika
Um helgina verða allir óskilamunir til sýnis hér í Kaplakrika og hvetjum við alla foreldra til þess að koma og skoða fatnaðinn. Mikið er af ósóttum fatnaði.
Allur ósóttur fatnaður verður gefinn til Rauða Krossins.
17.11.2011
Biggi
Jarðaför Hermanns Fannars Valgarðssonar
Það var okkur í FH mikið áfall er við fengum þær fréttir að Hermann Fannar Valgarðsson hafi orðið bráðkvaddur aðfaranótt miðvikudagsins 9. nóvember síðastliðinn. Hermann eða Hemmi eins og hann var ávallt kallaður var dugnaðarforkur mikill og annan eins FH-ing er erfitt að finna. Hann sat í Aðalstjórn FH frá því í vor og sá auk þess um hin ýmsu mál fyrir FH.
Hermann var giftur Söru Óskarsdóttur og eiga þau eitt barn, Loga Þór Hermannsson.
Það er því með miklum söknuði og trega sem við kveðjum Hermann og viljum við fyrir hönd FH senda fjölskyldu hans okkar dýpstu samúðarkveðjur.
Útför Hermanns fer fram þann 21. nóvember í Víðistaðakirkju kl 13:00 og verður erfidrykkja haldin í Kaplakrika að athöfninni lokinni.
Blóm og kransar eru vinsamlegast afþakkaðir en þeim sem vilja minnast Hermanns er bent á styrktarsjóð í nafni sonar hans 545-14-403403, kt 180507-3610.
Aðalstjórn FH
6.9.2011
Biggi
Andlát: Birgir Björnsson 22.febrúar 1935 - 2. september 2011
Fallinn er frá einn af mætustu sonum Fimleikafélags Hafnarfjarðar Birgir Björnsson. Birgir lést á heimili sínu í Hafnarfirði 2. september síðastliðinn, 76 ára að aldri. Hann var fæddur 22. febrúar 1935.
23.8.2011
Biggi
Vantar starfsfólk í Kaplakrika
Í Kaplakrika vantar húsverði/baðverði (kk eða kvk) á kvöldin. Vinnutíminn er frá klukkan 17:45 til klukkan 22:45 á fimmtudögum og föstudögum. Hugsanlega koma inn fleiri aukavaktir þegar leikir og stærri viðburðir eru í gangi í húsinu.
Hæfniskröfur:
Viðkomandi þarf að vera barngóður, samviskusamur, stundvís, áreiðanlegur, tilbúinn í fjölbreytilegt starf, með ríka þjónustulund og íslenskumælandi. Umsækjandi þarf að vera 18 ára eða eldri.
Þau sem eru áhugasöm eru vinsamlegast beðin um að senda póst á biggi@fh.is með ferilskrá.
21.7.2011
Biggi
Nacional - FH á breiðtjaldi í Kaplakrika kl 18:45 í KVÖLD
Evrópuleikurinn gegn Nacional verður sýndur í beinni útsendingu á breiðtjaldi í Sjónarhóli. Leikurinn hefst kl 18:45 og hægt verður að kaupa "Léttar"
veitingar gegn vægu gjaldi. Fjölmennum nú í Kaplakrika og styðjum okkar lið.
ÁFRAM FH!
4.7.2011
SR
Afhending Bakhjarlakorta
Á miðvikudaginn kemur (6. júlí) kl. 19:15 fer fram leikur FH og Grindavíkur í Kaplakrika.
Á leiknum verða Bakhjarlakort fyrir tímabilið 2011 afhent.
Bakhjarlar eru því beðnir að mæta snemma á leikinn til að forðast biðröð við afhendingu kortanna.
23.5.2011
Biggi
Óskilamunir í Kaplakrika
Á morgun þriðjudaginn 24. maí verður öllum óskilamunum raðað upp á borð í tengibyggingu. Foreldrar eru hvattir til þess að mæta og athuga hvort ekki leynist eitthvað sem hefur gleymst eða týnst.
Óskilamunirnir verða til sýnis í 2 daga (þrið/miðvd) og eftir það gefum við allt til Rauða Krossins.
17.5.2011
Biggi
Aðalfundur FH 24. maí kl 19:30
Aðalfundur FH verður haldinn þriðjudaginn 24. maí í Sjónarhóli Kaplakrika kl 19:30. Dagskrá, venjuleg aðalfundarstörf.
Aðalstjórn FH
5.5.2011
Biggi
Myndaband af stemmningunni fyrir leikinn í gær
Hér er skemmtilegt myndband sem sýnir stemmninguna sem var í húsinu þegar FH-lið var kynnt.
Ef þið eigið skemmtileg video af leiknum í gær megiði endilega senda okkur þau, á sverrir@fh.is eða joirun@fh.is
Myndbandið
19.4.2011
Biggi
Tilkynning frá aðalstjórn FH
Birgir Jóhannsson hefur verið ráðinn forstöðumaður íþróttamannvirkja FH í Kaplakrika.
15.2.2011
Hermann Valgarðsson
Aðalfundur Gaflaradeildar FH á fimmtudag.
Aðalfundur Gaflaradeildar FH verður haldinn fimmtudaginn 17. febrúar í Sjónarhól, samkomusal okkar FH-inga. Fundurinn hefst kl. 19:00 með venjulegum aðalfundarstörfum.
2.2.2011
Hermann Valgarðsson
Aðalfundur Knattspyrnudeildar FH
verður haldinn mánudaginn 14. febrúar 2011 í Kaplakrika og hefst klukkan 18:00.
12.1.2011
Hermann Valgarðsson
Óðinn Björn er íþróttamaður FH 2010
Á gamlársdag var íþróttamaður FH kjörinn Óðinn Björn Þorsteinsson. Óðinn Björn hlýtur þá sæmd fyrir kúluvarp, varpaði hann kúlunni 19,50 m innanhúss, sem er
mjög góður árangur og hans besti í kúluvarpi og gefur 1090 stig í alþjóðlegri stigatöflu og er hann
stigahæsti Íslendingurinn í frjálsíþróttum á árinu. Óðinn er í 38 sæti yfir bestu kúluvarpara heims
innanhúss, 22. sæti í Evrópu og næstbesti Norðurlandabúinn.
6.1.2011
Hermann Valgarðsson
Íþróttaskóli barnanna hefst 22. janúar.
Íþróttaskóli FH hefst laugardaginn 22. janúar í Kaplakrika. Ekki var hægt að byrja fyrr vegna þess að Kaplakriki er upptekinn fyrir mót/keppnir fyrstu helgarnar í janúar. Í stað þess mun íþróttaskólinn verða lengur starfandi fram á vorið en ella.
27.12.2010
Hermann Valgarðsson
Íþróttmaður FH á gamlársdag
Að venju verður íþróttamaður FH útnefndur á gamlaársdag. Við hvetjum
alla FH inga til að mæta í Krikann stundvíslega kl. 13:00 á gamlaársdag.
7.10.2010
Hermann Valgarðsson
Iðkendur og foreldrar í Íþróttaskóla FH athugið
Næstkomandi laugardag verður íþróttaskóli FH í Risanum, knattspyrnuhúsinu við Kaplakrika, vegna uppskeruhátíðar yngri flokka FH í fótbolta.