Óðinn Björn er íþróttamaður FH 2010
12.1.2011
Hermann Valgarðsson
Óðinn Björn Þorsteinsson er afreksmaður Frjálsíþróttadeildar FH.
Óðinn Björn hlýtur þá sæmd fyrir kúluvarp, varpaði hann kúlunni 19,50 m innanhúss, sem er
mjög góður árangur og hans besti í kúluvarpi og gefur 1090 stig í alþjóðlegri stigatöflu og er hann
stigahæsti Íslendingurinn í frjálsíþróttum á árinu. Óðinn er í 38 sæti yfir bestu kúluvarpara heims
innanhúss, 22. sæti í Evrópu og næstbesti Norðurlandabúinn. Óðinn Björn varpaði kúlunni 19,37
utanhúss sem er hans besti árangur utanhúss, hann er í 65. sæti á heimslistanum, 36. sæti í Evrópu
og næstbestur Norðurlandabúa. Óðinn Björn er með fjórða besta kúluvarparsárangur Íslendinga frá
upphafi. Óðinn Björn er Íslandsmeistari innanhúss og utanhúss í kúluvarpi, Bikarmeistari innanhúss
og utanhúss í kúluvarpi. Einnig var hann Íslands- og Bikarmeistari í kringlukasti utanhúss. Óðinn
Björn náði lágmarki á EM sem fram fór í Barcelona í júlí og ágúst.
Karlalið FH sigraði í öllum stigakeppnum á árinu og átti Óðinn þátt í öllum sigrunum.
Óðinn Björn hefur aldrei æft meira og búast má við enn meiri árangri frá honum á næstu árum.
Óðinn Björn hefur mikinn félagsþroska og er góð fyrirmynd fyrir aðra íþróttamenn.
Hér að neðan má sjá aðra sem útnefndir voru og umsagnir deilda.
Nefnd um val á íþróttamanni FH fyrir árið 2010 hefur komið saman og yfirfarið fyrirliggjandi
tilnefningar deilda félagsins.
Íþróttamenn FH sem tilnefndir voru eru:
Frjálsíþróttadeild:
Sara Úlfarsdóttir
Óðinn Björn Þorsteinsson
Handknattleiksdeild:
Ólafur Guðmundsson
Ragnhildur Rósa Guðmundsdóttir
Knattspyrnudeild:
Ólafur Páll Snorrason
Sigrún Ella Einarsdóttir
Skylmingadeild:
Gunnar Egill Ágústsson
Aldís Edda Ingvarsdóttir
Það er niðurstaða nefndarinnar að mæla með því til aðalstjórnar að fyrir valinu verði:
Íþróttamaður FH 2010: Óðinn Björn Þorsteinsson
Með bestu kveðju,
Hafnarfirði 23. desember 2010
Kristjana Aradóttir, formaður
Guðjón Árnason
Guðmundur Hilmarsson
Kristinn Guðlaugsson
Frjálsíþróttadeild FH
Sara Úlfarsdóttir er afrekskona Frjálsíþróttadeildar FH.
Hlýtur hún þá sæmd fyrir 200 m hlaup, Sara hljóp á tímanum 26,54 sek í 200 m hlaupi sem gefur 896
stig í alþjóðlegri stigatöflu, hljóp hún á þessum tíma á Meistaramóti Íslands. Sara er vaxandi hlaupari
og má búast við enn betri árangri frá henni á næstu árum. Sara var fyrirliði kvennaliðs FH sem er mjög
ungt lið og vaxandi. Sara hefur mikinn félagsþroska og er góð fyrirmynd fyrir aðra íþróttamenn.
Óðinn Björn Þorsteinsson er afreksmaður Frjálsíþróttadeildar FH.
Óðinn Björn hlýtur þá sæmd fyrir kúluvarp, varpaði hann kúlunni 19,50 m innanhúss, sem er
mjög góður árangur og hans besti í kúluvarpi og gefur 1090 stig í alþjóðlegri stigatöflu og er hann
stigahæsti Íslendingurinn í frjálsíþróttum á árinu. Óðinn er í 38 sæti yfir bestu kúluvarpara heims
innanhúss, 22. sæti í Evrópu og næstbesti Norðurlandabúinn. Óðinn Björn varpaði kúlunni 19,37
utanhúss sem er hans besti árangur utanhúss, hann er í 65. sæti á heimslistanum, 36. sæti í Evrópu
og næstbestur Norðurlandabúa. Óðinn Björn er með fjórða besta kúluvarparsárangur Íslendinga frá
upphafi. Óðinn Björn er Íslandsmeistari innanhúss og utanhúss í kúluvarpi, Bikarmeistari innanhúss
og utanhúss í kúluvarpi. Einnig var hann Íslands- og Bikarmeistari í kringlukasti utanhúss. Óðinn
Björn náði lágmarki á EM sem fram fór í Barcelona í júlí og ágúst.
Karlalið FH sigraði í öllum stigakeppnum á árinu og átti Óðinn þátt í öllum sigrunum.
Óðinn Björn hefur aldrei æft meira og búast má við enn meiri árangri frá honum á næstu árum.
Óðinn Björn hefur mikinn félagsþroska og er góð fyrirmynd fyrir aðra íþróttamenn.
Handknattleiksdeild FH
Ragnhildur Rósa Guðmundsdóttir:
Ragnhildur Rósa er leiðtogi meistaraflokks kvenna innan vallar sem utan. Hún var markahæsti
leikmaður liðsins á síðasta tímabili sem endaði í 6. Sæti N1 deildarinnar með 18 stig sem er talsvert
betri árangur en árið áður. En liðið hefur stöðugt bætt árangur sinn undanfarin ár og leikur liðsins
tekið miklum framförum.
Ólafur Andrés Guðmundsson:
Ólafur var markahæsti leikmaður meistaraflokks karla FH tímabilið 2009-2010 ásamt því að vera
markahæsti leikmaður liðsins á núverandi tímabili. Ólafs varð hann atvinnumaður hjá AGK í
Kaupmannahöfn á árinu en liðið lánar hann til FH þetta tímabil, sem sýnir glöggt gæði Ólafs sem
handboltamaður.
Ólafur var í leikmannahópi íslenska landsliðsins sem náði þeim frábæra árangri að vinna
bronsverðlaun á Evrópumeistaramótinu í Austurríki í janúar síðastliðinn. Hann var einnig lykilmaður í
U-21 árs landsliði íslands sem náði 8. sæti á Evrópumótinu í Slóvakíu í Ágúst.
Knattspyrnudeild FH
Knattspyrnudeild F.H. útnefnir Ólaf Pál Snorrason knattspyrnumann ársins hjá F.H.
Ólafur Páll Snorrason var fastamaður í liði F.H. sem varð Visa-bikarmeistari 2010, hafnaði í 2 sæti í
Pepsi-deildinni, tók þátt í Evrópukeppninni með F.H. og spilaði með A-landsliði karla.
Ólafur Páll var valinn leikmaður ársins af leikmönnum F.H. og var valinn í lið ársins í Pepsí-deildinni.
Ólafur Páll hefur með frammisstöðu sinni á s.l. keppnistímabili sannað sig sem einn af betri
knattspyrnumönnum sem spila á Íslandi í dag.
Kvennaráð knattspyrnudeildar F.H. tilnefnir Sigrúnu Ellu Einarsdóttur sem leikmann ársins 2010.
Sigrún hóf síðasta tímabil sem einn af okkar ungu og efnilegum leikmönnum. Hún elfdist með
hverjum leik í Pepsí-deildinni og var á seinni hluta tímabilsins algjör lykil leikmaður í liðinu og ein af af
helstu ástæðum þess að liðið náði góðum árangri í seinni hluta íslandsmótsins. Þessu til viðbótar æfði
Sigrún og spilaði með U19 ára landsliðinu á árinu og átti sinn þátt í góðu gengi þess.
Skylmingardeild FH
Gunnar Egill Ágústsson er íþróttakarl Skylmingadeildar FH. Gunnar hefur á árinu unnið
Norðurlandameistaratitil í flokki U21 ára. Gunnar var í öðru sæti á Íslandsmótinu í Opnum flokki sem
og í U21. Gunnar hefur verð síðustu fjögur ár einn af lykilmönnum í aðalliði FH. Á þessu ári tryggði
Gunnar liði FH Íslandsmeistaratitilinn í liðakeppninni með glæsilegum lokabardaga en leikar enduðu
45:43 . Gunnar er einn af lykilmönnum U21 landsliðsins. Gunnar náði einnig ágætis árangri á Viking
Cup í ár en hann endaði í fimmta sæti. Gunnar er einn sá efnilegasti á Íslandi í dag hvort sem er litið á
U21 eða Senior flokkana.
Aldís Edda Ingvarsdóttir er íþróttakona skylmingadeildar FH. Aldís Edda er í U18 ára landsliðinu.
Aldís náði ágætis árangri á árinu, á Íslandsmótinu lenti hún í 3. sæti í kvennaflokki og í U18. Á
Norðurlandamótinu í sumar lenti Aldís í öðru sæti í U18. Aldís er án efa ein af okkar ungu og efnilegu
skylmingakonum á Íslandi í dag.