Vís

Jarðaför Hermanns Fannars Valgarðssonar

17.11.2011 Biggi

Það var okkur í FH mikið áfall er við fengum þær fréttir að Hermann Fannar Valgarðsson hafi orðið bráðkvaddur aðfaranótt miðvikudagsins 9. nóvember síðastliðinn. Hermann eða Hemmi eins og hann var ávallt kallaður var dugnaðarforkur mikill og annan eins FH-ing er erfitt að finna. Hann sat í Aðalstjórn FH frá því í vor og sá auk þess um hin ýmsu mál fyrir FH.

Hermann var giftur Söru Óskarsdóttur og eiga þau eitt barn, Loga Þór Hermannsson.
 
Það er því með miklum söknuði og trega sem við kveðjum Hermann og viljum við fyrir hönd FH senda fjölskyldu hans okkar dýpstu samúðarkveðjur.
 
Útför Hermanns fer fram þann 21. nóvember í Víðistaðakirkju kl 13:00 og verður erfidrykkja haldin í Kaplakrika að athöfninni lokinni.
 
Blóm og kransar eru vinsamlegast afþakkaðir en þeim sem vilja minnast Hermanns er bent á styrktarsjóð í nafni sonar hans 545-14-403403, kt 180507-3610.
 
Aðalstjórn FH


Bakhjarl FH

Nú hafa knattspyrnu- og handknattleiksdeildir Fimleikafélagsins leitt saman hesta sína við útgáfu svokallaðra bakhjarla-korta FH. Takmarkið er að sjálfsögðu að fá alla FH-inga nær og fjær til að leggjast á eitt til þess að viðhalda styrk þessara deilda og ná ennþá hærri markmiðum í framtíðinni. Þú getur tekið þátt með því að gerast bakhjarl FH strax í dag.

Sjá nánar.

Myndasafn

Könnunin

Ert þú Bakhjarl?