Vís

Iðkendur og foreldrar í Íþróttaskóla FH athugið

7.10.2010 Hermann Valgarðsson
Næstkomandi laugardag verður íþróttaskóli FH í Risanum, knattspyrnuhúsinu við Kaplakrika, vegna uppskeruhátíðar yngri flokka FH í fótbolta.

Vegna þessa eru eftirfarandi breytingar á tímanum:
2 og 3 ára börn eru frá 9:30 - 10:10
4 og 5 ára börn frá 10:15 - 10:55


Við viljum minna krakkana á að koma vel klæddir í tímann því það getur verið kalt í Risanum enda er hann ekki upphitaður.

Bestu kveðjur, kennarar íþróttaskólans.

Bakhjarl FH

Nú hafa knattspyrnu- og handknattleiksdeildir Fimleikafélagsins leitt saman hesta sína við útgáfu svokallaðra bakhjarla-korta FH. Takmarkið er að sjálfsögðu að fá alla FH-inga nær og fjær til að leggjast á eitt til þess að viðhalda styrk þessara deilda og ná ennþá hærri markmiðum í framtíðinni. Þú getur tekið þátt með því að gerast bakhjarl FH strax í dag.

Sjá nánar.

Myndasafn

Könnunin

Ert þú Bakhjarl?