24.7.2010
Hermann Valgarðsson

Golfmót FH - skráning er hafin

Golfmót FH 2010 verður haldið á Hvaleyrarvelli þann 6. ágúst nk. Ræst verður út á milli 10:00 og 15:00. Þátttökugjald er kr. 5500.
Mótið er aðeins fyrir félaga og stuðningsmenn FH, 18 ára og eldri.
15.6.2010
Heiðar Arnarson

Tilkynning frá aðalstjórn

Samkvæmt ákvörðun aðalstjórnar FH hafa meistaraflokkar karla í handknattleik og knattspyrnu Kaplakrika til umráða einum og hálfum tíma fyrir sína heimaleiki í úrvalsdeild, bikarkeppni og Evrópukeppni, og verður þ.a.l. lokað fyrir aðra í búnings og félagsálmu á meðan á leik stendur. Meðfylgjandi er leikjatafla meistaraflokks í knattspyrnu, leikjatafla handknattleiksmanna verður birt síðar.
19.4.2010
Hermann Valgarðsson

Aðalfundur FH

Aðalfundur Fimleikafélags Hafnarfjarðar verður haldinn fimmtudaginn 29. apríl n.k. kl. 19:30 í safnaðarheimili Hafnarfjarðarkirkju.
19.4.2010
Hermann Valgarðsson

Fréttir af framkvæmdum

Framkvæmdum í Kaplakrika hefur miðað hægt undanfarna mánuði og mismikill mannskapur hefur verið á staðnum. Mestur hefur gangurinn verið í frjálsíþróttahúsinu og þessa dagana er verið að ljúka við að hífa þaksperrurnar.
26.2.2010
Hermann Valgarðsson

Aðalfundur Skylmingadeildar FH

Aðalfundur Skylmingadeildar FH verður haldinn föstudaginn 5. mars klukkan 20.00 í íþróttahúsinu við Víðistaðaskóla. Hefðbundin fundarstörf. Allir velkomnir.Stjórn Skylmingadeildar FH.
23.2.2010
Hermann Valgarðsson

Frístundabíllinn

Nú er að hefjast metnaðarfullt samfélagsverkefni í Hafnarfirði sem ber vinnuheitið FRÍSTUNDABÍLLINN. Um er að ræða tilraunaverkefni sem lýkur 31. maí 2010 og verður þá tekin ákvörðun um framhaldið sem ráðast mun einkum af þeim móttökum sem Frístundabíllinn hefur fengið.

Nánar á www.fristundabillinn.is
6.2.2010
Orri Þórðarson

Útför Orra Ómarssonar á mánudag

Útför okkar hjartkæra FH-ings, Orra Ómarssonar, verður mánudaginn 8. febrúar kl. 13:00 í Víðistaðakirkju.
27.1.2010
Benedikt Gunnar Ívarsson

Íbúagáttin

Minnum á að þann 1. febrúar opnar á ný fyrir umsóknir um íþrótta- og tómstundastyrki.
Frestur til að staðfesta þátttöku vegna vorannar 2010 er til og með 15. febrúar.
31.12.2009
Hermann Valgarðsson

Bergur Ingi Pétursson íþróttamaður FH 2009

Bergur Ingi Pétursson sleggjukastari var nú fyrir stundi valinn íþróttamaður FH.
31.12.2009
Hermann Valgarðsson

Davíð Þór íþróttamaður Hafnarfjarðar

Davíð Þór Viðarsson fyrirliði meistaraflokks karla varð í gær valinn íþróttamaður FH.
29.12.2009
Hermann Valgarðsson

Íþróttamaður FH á gamlaársdag

Að venju verður íþróttamaður FH útnefndur á gamlaársdag. Við hvetjum alla FH inga til að mæta í Krikann stundvíslega kl. 13:00 á gamlaársdag.
17.10.2009
Hermann Valgarðsson

Afmælishátíð FH - Viðtal við formanninn.

Við á FH.is hittum formann félagsins Viðar Halldórsson í léttu kaffispjalli á sjálfan afmælisdaginn, en eins og FHingar vita þá er dagskránni hvergi nærri lokið.
12.10.2009
Hermann Valgarðsson

80 ára afmælishóf FH-SKYLDUMÆTING

Þann 15. október verður Fimleikafélag Hafnarfjarðar 80 ára.  Í tilefni stórafmælisins verður afmælishátíð!
30.9.2009
Benedikt Gunnar Ívarsson

Ný leið við niðurgreiðslu þátttökugjalda

Hafnarfjarðarbær hefur gert breytingar á fyrirkomulagi niðugreiðslna vegna þátttöku barna í íþróttum.

Nánari upplýsingar á vef Hafnarfjarðarbæjar.

9.9.2009
Daði Rúnar Jónsson

Íþróttaskóli FH fyrir 2-6 ára byrjar á laugardaginn

Skólatími er á laugardagsmorgnum og byrjum við 12. september. Kennt er í tveimur flokkum: Yngri hópur 2-4 ára kl 9:30 og Eldri hópur 4-6 ára kl kl 10:30. Mætið stundvíslega þannig að börnin séu tilbúin á tilsettum tíma. Hvor tími er um klukkustund. Skólagjöld eru kr. 4.000 fyrir haustið 2009.Nánari upplýsingar veittir Daði Rúnar Jónssons í síma: 698-5044 eða netfang: dadi02@ru.is
27.8.2009
Geir Hallsteinsson

Geymsla á hjólum iðkenda í Kaplakrika.

26.8.2009
Geir Hallsteinsson

Nýr inngangur í íþróttahús Kaplakrika

23.7.2009
Hermann Valgarðsson

Golfmót FH á morgun

 Föstudaginn 24. júlí næstkomandi fer fram hið árlega Golfmót FH og er mótið haldið eins og undanfarin ár á Hvaleyrinni. Þátttökugjaldið er kr. 5000.
30.6.2009
Hermann Valgarðsson

Afmælismerki FH

Afmælisnefnd FH óskar eftir tillögum frá áhugasömum félagsmönnum um hönnun á
afmælismerki FH vegna 80 ára afmælisins í haust.
16.6.2009
Hermann Valgarðsson

Golfmót FH 2009 skráning hafin

 Föstudaginn 24. júlí næstkomandi fer fram hið árlega Golfmót FH og er mótið haldið eins og undanfarin ár á Hvaleyrinni. Þátttökugjaldið er kr. 5000.

Framkvæmdir í Kaplakrika

Eins og flestir iðkendur, foreldrar og almennir FH-ingar hafa tekið eftir er nóg um að vera á Kaplakrikasvæðinu þessa dagana. Áður en langt um líður komum við til með að eiga eitt allra glæsilegasta íþróttasvæði landsins. En á meðan framkvæmdum stendur þarf að sýna þolinmæði og fara varlega um svæðið. Smelltu hér til að fá nánari upplýsingar um framkvæmdina og aðgengi á svæðinu.

Myndasafn

Könnun

Ætlar þú að mæta á æfingar hjá Hlaupahóp FH